BrúðkaupÞað er fyrirbæri sem ég skil ekki. Ég er mjög hlynt hjónabandi en ég skil ekki þessi læti yfir því að tveir aðilar gangist undir lögbindandi samning. Það heldur enginn milljón króna partí þótt þeir skrifi undir kaupsamning eða ráðningasamning, eða einhvern annan samning.
Mér finnst að ef fólk ætlar á annað borð að búa saman, eiga börn saman og fjárfesta saman, þá eigi það að gifta sig. Þetta tryggir ákveðin réttindi ef eitthvað skildi koma fyrir. Ef svo "ólíklega" vildi til að annar aðilinn myndi t.d. deyja. Þá erfir hinn aðilinn sjálfkrafa allar eignirnar sem báðir aðilar hafa átt þátt í að skapa. Það tryggir líka eftirlifandi aðila rétt á eftirlífeyri og tryggingum. Bara svona ykkur til upplýsinga þá tryggir sambúð ekki sömu réttindi og hjónaband. Því miður eru allt of margir sem halda það. Þær eru líka ófáar dömurnar sem hafa brennt sig á því að karlinn sé skráður fyrir íbúðinni og bílunum og svo fær hann leið á henni og hendir henni út og hún á ekki rétt á neinu því þau voru í sambúð. Eða konurnar sem búa í íbúð barna sinna því þær voru í sambúð og svo dó karlinn og börnin eru löglegir erfingjar því þau voru í sambúð. Það ætti að vera öllum ljóst by now að ég er hlynt hjónaböndum. En brúðkaup...Þau skil ég ekki.
Ef eitthvað er að marka umræður og bandaríska sjónvarpsþætti þá vilja konur ólmar halda brúðkaup. Þær dreymir allar um að verða prinsessur í rjómakökukjól og njóta allrar athyglinnar einn dag. Til að ná þessu markmiði verður að halda rándýra veislu og bjóða öllum sem parið þekkir til að dást að þeim í EINN DAG!!!
Ofan á allt saman er aðal sportið að vera í hvítum kjól og láta leiða sig inn kirkjugólfið. ÞAÐ ER 2005, HVAR ER JAFNRÉTTIÐ? Hvíti kjólinn er táknmynd hreinleikans, óspjölluðu meyjunar sem faðirinn afhendir eignmanninum á táknrænan hátt. Konan fer úr eign eins manns í eign annars. OG ÞETTA VILJA KONUR! Þið getið komið með öll þau rök sem þið viljið. Þetta er það sem þessi athöfn táknar. Og þetta lýsa þær yfir að sé "Stærsti dagurinn í lífi mínu".
Mér finnst mjög ólíklegt að ég gifti mig. EN EF ég kynnist karli sem ég get hugsað mér hanga með í einhvern tíma og hugsanlega eiga börn, líka mjög ólíklegt, þá mun ég gifta mig. Ef ég yrði í kjól, þá yrði hann ekki hvítur, og pabbi, sem er reyndar dáinn, myndi ekki leiða mig inn kirkjugólfið.
Ég er merkilegasta manneskja í mínu lífi alla daga. Ég þarf ekki annað fólk til að dást að mér í einn dag. Ég er æði og ef annað fólk sér það ekki alla daga þá er það þeirra vandamál. Ef mig langar til að halda brjálað partí og bjóða fullt af fólki þá geri ég það bara. Ég get ekki bennt á neinn einn dag og sagt að það sé besti dagurinn í lífi mínu. Ég vil að morgundagurinn gæti orðið besti dagurinn í lífi mínu. Ég vil ekki að besti dagur lífs míns sé liðin.