Ossið er ekki alveg nógu hresstÞað fór allur gærdagurinn í gæsapartí. Ég skemmti mér vel meirihlutan af tímanum. Er ekki alveg nógu hrifinn af því þegar gæsin er látin gera sig af fífli. Það er bara ekki minn stíll. Fórum í Bláa lónið og út að borða. Það var mjög notalegt og gaman. En gæsin var ánægð og það er fyrir öllu. Ég hins vegar varð eitthvað leið um kvöldið. Fór eitthvað að hugsa um þær ákvarðanir sem ég hef tekið í lífinu og hvort þær hafi verið réttar. Eftirsjá er það versta.
Ísold er ekki búin að kasta. Hver dagur sem líður eykur líkurnar á því að Dagur litli, sem ég á, sé faðirinn. Reyndar sá ég jarpan fola vera að reyna að riðlast á henni daginn sem ég sótti hana í fyrra. Það þýðir að það er næstum ómögulegt að finna út hvor væri faðirinn miðað við hvenær hún kastar. Þessi jarpi foli er enn í stóðinu. Hann lítur út fyrir að vera með eistu, eða m.ö.o. ógeltur. Bóndinn og eigandinn fullyrða hins vegar báðir að búið sé að gelda folann. Og ég næ ekki folanum til að þreifa undir hann. Það þyrfti að smala hrossunum í rétt til að ég næði honum. Það er dálítið erfitt að krefjast þess þegar fullyrt er að folinn sé geltur. Svo er auðvitað "fræðilegur" möguleiki á því að Dagur sé faðirinn. Auk þess heldur bóndinn örugglega að ég sé snarrugluð, ég er endalaust að röfla um þennan fola.
Þá er litla brúna folaldið, sem minn fyrrverani á, aftur orðið halt. Eða ekki aftur orðið, búið að versna. Hann er búinn að vera svo óheppinn í hrossaræktinni að það er engin hemja. Svo mér líður illa yfir því að folaldið hafi slasast í minni umsjá. Ætla að tala við dýralækni á morgun og jafnvel fara með hana og krefjast þess að myndir verði teknar, til öryggis.
Mútta á pantaðann tíma hjá hjartarvernd á morgun. Hún kvíðir fyrir því að fara. Ég kvíði reyndar líka fyrir því. Það er hjartaproblem í fjölskyldunni og það eru ekki nema tvö ár síðan hún hætti að reykja. Himnarnir gætu hrunið. You never know.
Svo eins og það sé stórmál, þá get ég ekki ákveðið undir hvaða stóðhesta ég á að halda í sumar. Er líka enn að vandræðast hvort ég eigi að gelda folana sem ég fékk í fyrra. Það er ekkert nema vesen að gera það ekki en hvað ef þeir yrðu svo æðislegir? Það væri náttla bara hræðilegt að hafa þá gelt þá. Það er svo stupid að vera í þessum vandræðum með þessa ákvörðun.
Get heldur ekki líst því hvað er búið að vera erfitt að koma þessum orðum frá sér. Er marg búin að deleta og endurskrifa og gvöð má vita hvað. Svo datt tengingin út. Christe! Það er best að hætta að röfla.