Gaaaaaaaaaaaarrrrrgg!!!!!!!Ég fékk flog í dag. Það eina sem snérist í hausnum á mér var samtalið við bóndann í gær. Og Gleði. Tveggja vetra hryssan mín. Hvað ef hún væri fylfull? Svo um hádegið var ég búin að spenna mig svo mikið upp að ég þoldi ekki við lengur. Svo það var ekkert annað að gera í stöðunni en að fara á staðinn og ná í dömuna og koma henni í fylskoðun. En eins og allt annað sem hefur gengið á, á þessu guðsvolaða ári, þá var auðvitað galli á gjöf Njaðar. Gleði er eina hrossið sem ég á sem ég get ekki gengið að úti í haga og náð. Oooooog... það er engin rétt í haganum þar sem þau eru. Ég dró því með mér færanlega rafmagnsgirðingarstaura og band, fullt af brauði, sem ég keypti í bónus og svo auðvitað hestakerruna. Það tók nokkrar tilraunir, marg slitið rafmagnsband, næstum allt brauðið og kaðalinn sem ég er með í bílnum, nei ég snaraði hana ekki, en ég náði beyglunni. Það var svo leikur einn að koma henni upp á kerruna, enda vel taminn þótt stygg sé. Það var reyndar dýralæknir sem ég þoli ekki sem skoðaði hana og ég treysti ekki fullkomlega en hún er ekki fylfull. Hjúkk, hjúkk hjúkk. Það hefði verið ógleði.
Ég er hins vegar búin að fá yfir mig nóg af þessu öllu saman. Það var líka að flækjast fyrir mér að bóndinn, sem þekkir varla haus né hala á hestum, talaði um að hann hafi skoðað þennan brúna fola og ekkert fundið að honum. Brúna??? Hann var ekki brúnn, hann var jarpur. Nú komst ég að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að tala við mann sem hefði meira vit á þessu. Ég hringdi því í manninn sem á þessar sex hryssur sem eru fylfullar og mér skildist að hefði verið að aðstoða bóndann við að skoða folana í gær. Og mikil ósköp, þeir skoðuðu engan jarpan fola í gær. Hins vegar hafði verið fangaður jarpur, ógeltur foli í stóðinu á næsta bæ!!! Já, er það??? Nú lítur út fyrir að gátan sé leyst. Bóndinn hefur líklega alltaf haldið að ég væri að tala um brúnan fola sem einhver karl á. Á meðan hefur þessi ógelti jarpi foli verið að valsa á milli girðinga. Ég er því búin að hringja í manninn á næsta bæ og ég er að fara aftur í Leirársveitina annað kvöld að skoða þennan jarpa fola og gá hvort þetta sé folinn sem ég er búin að vera að röfla um frá því í MAÍ Í FYRRA!!!
Ég skal komast til botns í þessu máli. Og framvegis skulu þessir sveitakarlar hlusta á borgarbarnið. Mikið djöfull er ég orðin þreytt á því að heimskir karlar hlusti ekki á mig. Ég veit hvað ég er að tala um. Ég tala ekki um hluti sem ég hef ekki vit á. Ef ég segi að það sé bleikur fíll út í haga, ÞÁ ER BLEIKUR FÍLL ÚT Í HAGA!!!